|
|
15.02.2006 14:23:51 / Bumban burt
hafa séð til þess að ég hef ákveðið að flytja mig um set.
Þetta er minn nýji staður: Bullubumba. Er búin að færa allar
færslurnar héðan yfir á þá síðu.
»
14.02.2006 14:12:22 / Bumban burt
það er ekki nóg með að tikkerinn minn sé horfinn, heldur er
komin auglýsing með rollum á fullu á staðinn þar sem hann
var. Ég er ekki hissa þó einhverjir séu að færa sig milli
bloggheima.
»
14.02.2006 09:27:13 / Bumban burt
hafa verið frekar endaslepptar vegna veikinda á heimilinu.
Einhvern veginn vill það fara svo að það er erfitt að halda í við
sig þegar ástandið er þannig. Nú sé ég fram á að þurfa að koma
mér í gírinn aftur til að halda áfram. Ég er ekki bjartsýn á
að ég nái markmiði mínu fyrir ferðina út í mars, en ætla að stefna
að því samt sem áður að komast eins nálægt því og kostur
er.
»
08.02.2006 14:42:21 / Bumban burt
og farið 1,5 kg. eftir þessa viku. Ég er verulega ánægð
með þessa útkomu, bjóst svo sem við að það yrði farið í
kringum eitt kíló, en þetta var framar vonum.
Ég er farin líka að fá viðbrögð um að ég hafi grenst frá
vinnufélögum, og það er ekki til að minnka áhugann á að gera enn
betur næst.
»
03.02.2006 09:14:57 / Bumban burt
í hreyfingu er náð. Ég setti mér það takmark að fara
minnst þrisvar í viku í ræktina og í gær var í þriðja skiptið í
þessari viku sem ég fór. Og ég tók vel á því og fann vel
fyrir því í gærkvöldi að ég hefði lagt mikið á mig. Ég stefni
á að fara um helgina líka einu sinni til tvisvar. Ég var að
hugsa um það í gær að nú væri ég búin að vera heilan mánuð í
ræktinni og er ekki búin að missa áhugann ennþá, frekar
öfugt. Þetta er í fyrst sinn sem ég hef virkilega ánægju af
því að fara, finn vellíðanina streyma um mig og veit að það sem ég
hef verið að leggja á mig á eftir að færa mig nær takmarki
mínu.
Ég setti mér ný markmið í gærkvöldi. Ég er að fara í
utanlandsferð um miðjan mars og þá langar mig alveg óskaplega mikið
til að vera búin að ná af mér 10 kílóum í heildina svo að ég geti
virkilega verðlaunað mig úti. Fyrir ári keypti maðurinn minn
nokkrar góðar gallabuxur handa mér úti í Ameríku, en þær urðu
mjög fljótt ónothæfar sökum smæðar. Ég ætla mér að komast í
einni af þeim út í mars. Ég skal !!!! Það þýðir
sem sagt að ég þarf að losa mig við fjögur kíló í febrúar og
helst 3 kíló í mars. Ég veit að það er frekar óraunhæft, en
miðað við að mér tókst að farga þremur kílóum í janúar, þrátt fyrir
kæruleysi um miðjan mánuðinn, þá ætti þetta ekki að vera neitt
svakalegt mál.
»
01.02.2006 23:10:49 / Bumban burt
sem gekk frá frú Viktólínu í dag. Það létu sem sagt 900 grömm
sig hverfa svona rétt sí svona, og ég sem hélt að það yrðu aldrei
meira en 4- 500 grömm í hæsta lagi. Svona getur maður platað
sjálfan sig.
»
01.02.2006 13:21:54 / Bumban burt
enda tók ég vel á í ræktinni í hádeginu. Þegar ég fór í
íþróttabuxurnar fór ég að velta fyrir mér hvort ég hefði óvart
tekið vitlausar buxur því þær höfðu víkkað frá því síðast, en nei,
þetta ERU mínar buxur. Æfingarnar eru greinilega að skila
sér. Ég steig jafnframt á viktina, reyndar nærri fatalaus og
89,4 blöstu við mér. Vonandi verður hin eina sanna viktólína
eitthvað svipuð, þó svo að ég geri mér ekki miklar vonir um það,
enda hef ég verið alveg afskaplega ódugleg í vatninu síðustu
daga.
Þessi upplifun með buxurnar veittu mér heldur betur spark í
rassinn með að taka nú 100% ddv, og fara að sjá árangur líka á
viktinni. Núna bölva ég mér fyrir að hafa ekki tekið mælingar
í janúarbyrjun til að sjá hversu margir centimetrar væru að
fara. Það er þó betra seint en aldrei að skrá inn mælingar
svo kannski ég taki mig til í kvöld og mæli mig hátt og
lágt.
Markmið febrúarmánaðar er að ná 3 kílóum í burtu, fara þrisvar í
viku að lágmarki í ræktina, drekka 2 lítra af vatni á dag, og eiga
sem flesta 100% ddv. daga.
»
01.02.2006 08:13:34 / Bumban burt
eftir gærdaginn, en það ætti að koma ný tala í dag. Ég
býst ekki við neinum ósköpum, en samt ætti ég að hafa farið
eitthvað smá niður. Áfram hef ég ekki verið að fara alveg
100% eftir prógramminu, en haldið samt vel í við mig, og lagt
áherslu á grænmetið og ávextina, þegar til kom hafði ég ekki tíma
um helgina fyrir skipulag á vikunni. Ég gaf mér þó tíma til
að steikja og baka grænmeti fyrir vikuna svo að ég myndi ekki falla
á því líka.
Annars hefur undanfarin vika verið þrungin spennu og í gær
skrifaði ég undir samning um nýja vinnu sem ég er virkilega spennt
fyrir. Hlakka til að takast á við ný verkefni á nýjum
stað.
Ég bæti inn nýrri tölu (vonandi) í dag.
»
27.01.2006 14:44:45 / Bumban burt
og velta fyrir mér framhaldinu. Ég hef ekkert farið eftir
ddv síðustu daga, en haldið vel í við mig samt sem
áður. Ég var ánægð í gærkvöldi þegar maðurinn minn
settist við hliðina á mér með sitt prins póló og kók og gúffaði í
sig á meðan ég sat með prjónana mína og lét það ekki pirra mig, né
freista mín. Mér finnst það viss sigur að hafa staðist þetta,
þó að ég hafi eitthvað sprungið á limminu síðustu daga.
Ég dreif mig í ræktina í hádeginu og tók vel á á hlaupabrettinu
og leið alveg ótrúlega vel á eftir.
Í kvöld stefni ég á að setjast niður og skrifa niður markmið,
gera mataráætlun fyrir vikuna og velta fyrir mér betur hvert ég
stefni. Ég sé að markmiðin sem ég setti mér eru of víð, ég
þarf líka að skrifa þau niður þar sem ég hef þau fyrir augunum alla
daga, ekki bara í einhverju skjali í tölvunni þar sem ég opna bara
endrum og eins.
Ég ætla mér að grennast.
Ég ætla mér að styrkjast.
Ég ætla mér að nota stærð 38 - 40
og ég veit að ég get þetta ef að ég vil. Það kostar
bara skipulag, staðfestu og ákveðni og smá aukatíma, sem verður
fljótur að borga sig til baka í aukinni orku.
Og hana nú !!!!!!
»
25.01.2006 09:32:25 / Bumban burt
Staðfestan sem
var til staðar í byrjun árs hjá mér, er gjörsamlega
horfin. Ég veit
ekki alveg hvað er að gerast með mig. Í gær tapaði ég algjörlega
áttum, fyrri part dagsins hélt ég reyndar prógramminu til
streitu, en þegar leið á daginn fór allt í óefni. Ég fór í bíóið, og var þá bara
búin að borða einn banana yfir miðjan daginn og var farin að
finna örlítið til svengdar í byrjun myndar, en myndin er frekar
löng og í hléinu var ég að farast úr hungri. Fór að afgreiðsluborðinu, og
ætlaði nú bara að kaupa mér einn sítrónutopp, en áður en ég
vissi af var ég líka búin að biðja um minnsta pokann af poppi,
sem er alls ekkert lítill. Ég arkaði með þetta upp í sal
aftur, og áður en ég vissi af var popppokinn
tómur. Ég hef nú
grun um að poppið hafa ekki endað á gólfinu
............
Með bíómiðanum
fylgir tilboð um 2 hamborgara frá Burger king, og ég nýtti það
tilboð og tók með heim. Við hjónin borðuðum sinnhvorn
hamborgarann í kvöldmat, og ég gaf mér engan tíma í að tína til
grænmeti, svo að það fór út líka. Í gærkvöldi kom svo vinkona mín í
heimsókn, og í stað þess að hafa ávexti handa okkur, tók ég fram
osta og kex, og stóð mest í því sjálf. Vinkona mín er ákaflega staðföst
og heldur sig við efnið, og var ansi pen í nágrenni ostanna á meðan
að ég gjörsamlega tapaði mér.
Satt að segja er
ég miður mín yfir þessum degi, það er voða gott að segja öðrum að
þeir skuli ekki vera með móral því það dragi þá niður, og meiri
hætta sé á að eyðileggja allt, en þegar til kemur, þá er ég sjálf í
þessum sporum, og ræð ekkert við þessa
móralstilfinningu.
Gleðin sem var til staðar fyrri part dagsins í gær vegna stækkandi
fatnaðar, er gjörsamlega horfin. Ég hugga mig þó við eitt, ég hef
alveg staðist súkkulaðið sem er til í skápnum heima og bóndinn er
að borða daginn út og inn. Mig bara langar ekki í það –
súkkulaðisvínið sjálft.
Ég hef ákveðið að
fara ekki í viktun í dag, enda mikið að gera hjá mér, (þó að það sé
engin afsökun). Nú
þarf ég að taka í hnakkadrambið á sjálfri mér, og koma mér af stað
aftur.
»
24.01.2006 10:07:11 / Bumban burt
var bara nokkuð góður, a.m.k. náði ég nokkuð að fara eftir
prógramminu, vantar reyndar einn ávöxt upp á, og c.a. 300 ml. af
vatni. Í hádeginu fór ég svo í ræktina og tók hraustlega
á.
Þó að ég hafi ekki verið alveg nógu dugleg að fara eftir
prógramminu undanfarið þá finn ég að fötin hjá mér eru byrjuð að
gefa aðeins eftir. Ég fór í gær í buxur sem ég var að
nota fyrri part síðustu viku, og viti menn, þær eru orðnar talsvert
víðari. Einnig er vetrarúlpa sem ég keypti í haust og var
orðið verulega erfitt að renna upp, orðin talsvert auðveldari í
meðförum og enginn vandi að renna upp. Þetta hvetur mig áfram
til að halda mig við efnið.
Ég ætla ekki í viktun í dag, ætla að fara í bíó að sjá Minningar
Geishu, en kíki væntanlega á viktina á morgun í staðinn.
»
23.01.2006 10:25:15 / Bumban burt
hún var of slæm matarlega séð til þess. Og afleiðingarnar
koma vísast í ljós á morgun.
»
20.01.2006 15:22:14 / Bumban burt
Ég hef ekki verið nógu dugleg núna þessa vikuna að fara eftir
prógramminu, ég hef ekki dottið í neina óhollustu, frekar að ég
hafi borðað of lítið, og þá helst er ég að klikka á
grænmetinu. Ég ætla að vinna mér í haginn um helgina fyrir
næstu viku, og elda slatta af grænmetisréttum. Er svo að fara
á þorrablót um helgina, og geri ráð fyrir að leyfa mér aðeins að
smakka á þessu helsta þar.
Ég fór í ræktina í gær í tækjakennslu og fékk gott prógram til
að vinna eftir. Jafnframt var gerð á mér "ástandsskoðun" þar
sem ég var viktuð og fitumæld. Þá kom annað áfallið á stuttum
tíma. Fituprósentan hjá mér er rúmlega 40 !!!!!!! Úff,
alveg hræðilegt. Þjálfarinn sagði mér að til að komast niður
í 28% fitu, þá þyrfti ég að léttast um 20 kíló. Ég nefndi við
hana að ég stefndi á 30 kíló niður, en hún sagði mér að miða frekar
við 20, þar sem ef að ég ætla að æfa með, þá komi ég til með að
safna vöðvum líka og þeir eru þyngri en fitan. Þegar þessi 20
kíló væru farin, þá væri sniðugt að meta stöðuna á nýjan leik, ef
að mér finndist ég þurfa að losa mig við fleiri.
Ég er mjög ánægð með að vera komin með plan til að fara eftir,
sérsniðið fyrir mig. Ég fékk jafnframt mikið af góðum ráðum
til að fara eftir. Ég er mjög spennt að takast á við þetta
því ég finn að mér líður bara svo miklu betur við að hreyfa mig
svona.
Ég býst við að viktin verði mjög miskunnarlaus á þriðjudaginn og
geri mér engar vonir um neitt stórtap í þetta skiptið. En það
er líka mitt val eða mitt slugs, að svo fari.
»
19.01.2006 12:30:19 / Bumban burt
Ég væri alveg til í að fá linkinn á þína síðu líka ....... ef ég
má
»
19.01.2006 09:47:53 / Bumban burt
Ég hef haft sérstakt kerfi á flokkun tengla á síðunni, þau sem
eru komin á leiðarenda, eða við það að komast þangað eru undir
flokknum hetjur, þau sem eru að byrja núna á nýju
ári eins og ég eru undir flokknum byrjendur og þau
sem hafa verið í einhverja mánuði flokka ég undir
ferðalangar. Ég hef reynt að raða rétt undir
flokka en ég stenst ekki mátið að setja þessa síðu http://www.blog.central.is/kisu/ undir
hetjuflokkinn.
»
Síður: 1 2 3
|
|